Where is my mind? - Boston Pizza

March 09, 2018 NaN
Where is my mind? - Boston Pizza
Fílalag
Where is my mind? - Boston Pizza

Mar 09 2018 | NaN

/

Show Notes

Ef maður myndi spyrja einhvern random Bandaríkjamann um hljómsveitina Pixies, þá eru líkur til þess að hann myndi yppa öxlum og ropa framan í þig - Homer Simpson style. Bandaríkjamenn utan hörðustu indí-vígja, þekkja ekki þetta band. Auðvitað þekkja sumir þeirra gítarlínuna í Where is My Mind, sem fílað er í dag, en annað ekki.
Það sama er ekki uppi á teningnum á Íslandi. Sérhver Íslendingur sem átt hefur CD-spilara eða kveikt á Rás 2 þekkir Pixies mjög vel. Bandið hefur meira að segja komið tvisvar til Íslands og fyllt bæði Kaplakrika og Laugardalshöll. Pixies er stadium-band fyrir Íslendinga. Jafn basic og Víking gylltur í hönd gröfumanns á Egilsstöðum.
En samt vita Íslendingar ekkert mikið um uppruna Pixies. Þeir vita til dæmis ekki að þrátt fyrir að Pixies hafi ávallt notið meiri vinsælda í Evrópu, einkum Bretlandi, heldur en í eigin heimalandi - þá er um að ræða mjög amerískt band. Þetta eru Boston-djöflar. Pizza slafrandi, baseball-áhorfandi hettupeysulið með vélindabakflæði. Og það útskýrir eiginlega allt mögulegt í sambandi við Pixies.
Where is My Mind er vissulega einskonar þjóðsöngur landsins þar sem gröns og krútt haldast í hendur - gæsahúðaóður kaldhæðnu kynslóðarinnar. Og það er eitt besta lag allra tíma. En kannski er það fyrst og fremst eins og góð pizza - bara eitthvað hveiti-baserað þarmakítti sem maður fær ekki nóg af.

Other Episodes

Episode

February 07, 2015 NaN
Episode Cover

Say It Ain't So - Normcore krakkar þurfa að kæla sig

„Menn eru eitthvað að tala um normcore í dag eins og það sé hin ultimate hipstera-kaldhæðni. Að klæða sig í kakí-buxur og hvíta strigaskó...

Listen

Episode

January 23, 2026 00:56:13
Episode Cover

Anarchy in the UK - Stærsta svindl sögunnar

Sex Pistols – Anarchy in the UK Taktu kjötmassa og láttu hann skoppa eins og pinball kúlu á milli blautra skuggasunda og lostaklúbba og...

Listen

Episode

January 18, 2019 NaN
Episode Cover

Garden Party - Partíið endalausa

Mezzoforte - Garden Party Það eru engin orð framkölluð í laginu sem er fílað í dag. Í því heyrist aðeins söngur saxafóns og tóna....

Listen